JÓN GNARR

Prentvæn útgáfa

Það er nú ekki margt sem við getum sagt ykkur um Jón Gnarr sem þið vitið ekki nú þegar.
En við getum lofað ykkur því að með því að fá hann til að koma fram í myndinni fengum við vægast sagt skemmtilega útgáfu á því hvernig hann sér mynstrið í íslensku samfélagi.

Undir „Stiklum" hérna annars staðar á síðunni getið þið séð skemmtilegan bút úr innleggi Jóns Gnarrs í Maybe I Should Have. 
Það kæmi okkur ekkert á óvart ef ákveðinn útrásarvíkingur yrði kallaður Jóakim önd eftir að fólk hefur séð myndina. 
Jón Gnarr fer á kostum og eins alvarlegt og umfjöllunarefnið er þá eiga hlátrasköllin eftir að glymja í bíó.